Myrkur -?-?- Trúum á efann!






Andans fólk?

Ausa

Ásta Kristín

Borgþór

Bragi

Einar

Einar og Agnes

Einkamál SJ

Elías Jón

Eyrún

Fraiser

Hel

Ingó

Ingvar

Íris

Ísleifur

Jakob

Jökulnornin

Kata

Kristjana

Kuldaboli

Landneminn

Maggi Tóki

Magni

Máni

Ofurrollan

Sigga Hulda

Skotta

Stefán Bogi

Stefanbogi.is

Svenni

Sverrir

Unnur

Urdur

Þóra P

Þórunn Gréta

Vígþór

Vésteinn



Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




blogdrive

Wednesday, December 05, 2007
UPPRISINN OG FLUTTUR!!

Skyldi einhver ennþá ramba inn á þessa síðu þá langar mig að benda þeim hinum sama á að ég hef gert nýja innrás í netheima. Fyrir skömmu tók ég að blogga að nýju og er slóðin: http://www.tilvist.wordpress.com

Posted at 08:53 am by Myrkur
Make a comment

Wednesday, September 06, 2006
Síðustu dagar ...

... hafa verið erfiðir fyrir margra hluta sakir.

Framundan eru mörg verkefni og mikið erfiði.

Hér gætu því orðið strjálar færslur á næstunni.

Posted at 05:18 pm by Myrkur
Comments (1)

Thursday, August 24, 2006
Afleysingahundahirðir

Skemmtilegur titill!

Það líður reyndar að starfslokum í þessu virðingarmikla starfi. Foreldrarnir snúa heim á morgun og ég þarf víst að mæta í dagvinnuna mína í fyrramálið. Þarf vegna þess að vakna óþægilega snemma og keyra yfir Breiðdalsheiðina til Héraðs. Heiðina, sem mér skyldist af því að lesa tölvupóst frá félaga í fjarlægu landi, að sé eins og hraðbraut miðað við það sem hann er að upplifa. Ég reyni því að brosa meðan ég hristist yfir holurnar á heiðinni, hugsandi um að aðrir keyri á verri vegum og þakkandi fyrir að ég sé ekki með falskar tennur eða sé að flytja neitt verulega brothætt.

Eins og ég hef vafalaust áður sagt þá er mannbætandi að skella sér í svona sveitaferð í nokkra daga. Vera einn með hundum og hestum. Alveg hreint ágætt. Það versta við þessa ferð var hins vegar það að ég hef alltof lítinn tíma haft til að njóta þess að vera hérna. Hef þurft að sinna "hinum störfunum mínum" sem öll kalla á yfirlegu yfir pappírum og gón á tölvuskjá. Það fokkar alveg sveitastemmingunni. Þokan hefur svo valdið því að ég næ ekki einu sinni að verða rauðhálsóttur, þrátt fyrir að vera í sveitinni.

Framundan eru ýmsar annir um helgina, stutt vinnuvika á safninu og síðan ráðstefna í höfuðstaðnum.

Til mín berst ómurinn af hinni örmu bíómynd Armageddon! BBC sýnir líka drasl!


Posted at 11:34 pm by Myrkur
Make a comment

Monday, August 21, 2006
Orsök og afleiðingar

Ég hef víst einhvern tíma áður lýst viðhorfi mínu til flugelda á þessari bloggsíðu. Ég tel að núna sé tilefni til að gera það aftur.

Þegar ég frétti af hinu hörmulega bílslysi átti sér stað skammt frá Mosfellsbæ rétt eftir miðnætti aðfaranótt síðastliðins sunnudags, sem varð vegna þess að hross hljóp í veg fyrir bíl sem svo lenti á öðrum bíl með þeim afleiðingum að einn maður lést og fleiri slösuðust, þá datt mér í hug að þetta væri ástæðan fyrir slysinu. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að sjá hesta sem hafa fælst (m.a. vegna flugelda) og þeir eru svo sannarlega stjórnlausir og æða yfir hvað sem fyrir verður algjörlega viti sínu fjær af hræðslu.

Þó ekki sé hægt að fullyrða með óyggjandi vissu að flugeldasýnining hafi valdið því að hrossin fældust þá verður að telja yfirgnæfandi líkur á að svo hafi verið. Hestar (líkt og flest önnur dýr) eru viðkvæmir fyrir sprengihvellum og leifturljósum. Flugeldasýning - einhver öfgafyllst táknmynd heimskulegrar efnishyggju - nær því í þessu tilfelli ekki aðeins að ala af sér barnaþrælkun í fjarlægum löndum heldur skapar hættuástand sem leiðir af sér dauða og örkuml. Þetta er í einu orði sagt: hörmulegt!

Ég vona að sá fjöldi sem góndi á flugeldasýninguna á menningarnótt, og á eftir að láta flugelda lýsa upp augu sín síðar meðan kjálkarnir síga niður á bringu, hafi notið sýningarinnar síðastliðið laugardagskvöld. Ég geri jafnframt ráð fyrir að stærstur hluti þess sama fjölda gæti þess að leiða ekki hugann að því hvaða verði þessa heimskulega glysgirni er keypt.

Posted at 09:21 am by Myrkur
Comments (1)

Sunday, August 20, 2006
Gönguferð gærdagsins

Ég eyddi stórum hluta gærdagsins í 700 til 1000 metra hæð. Loksins létum við feðgar verða af því að skálma um svæði (á eigin landi og annarra) sem hann hefur sjaldan komið á og ég aldrei. Alls tók túrinn um sjö klukktíma, þar af vorum við um fjóra og hálfan á gangi, en við gátum stytt okkur nokkuð leið með því að keyra áleiðis og svo til baka.

Ferðin var stórskemmtileg og margt athyglisvert bar fyrir augu. Margar útgáfur af auðn, ótrúlegur fjölbreytileiki steintegunda og (merkilegt nokk) allskonar plöntur sem maður finnur í auðninni, þegar betur er að gáð. Merkilegast var þó líklega að koma á stað (sem er dálítið eins og gígur í laginu) og uppgötva að þar, undir þunnu lagi af grjóti og möl, virðist vera sífreri og í botninum er smá lón eða tjörn með lit jökullóns.

Þrátt fyrir að vera svo hátt uppi var hitastigið um og yfir 20 gráður og komum við feðgar því "rauðhálsóttir" heim. Það má segja að á margan hátt hafi það verið viðeigandi.

Posted at 05:00 pm by Myrkur
Make a comment

Wednesday, August 16, 2006
Íslenskur nasismi?

Snorri Óskarsson, áður kenndur við Betel í Vestmannaeyjum en núverandi kennari á Akureyri, er einn þeirra Íslendinga sem notar trúarbrögð sem afsökun fyrir að ala á fáfræði, ofstæki og mannfyrirlitningu.

Á NFS í gærkvöld gaf m.a. að heyra kostulega og afskaplega ósmekklega samlíkingu Snorra á samkynhneigð annars vegar og ofbeldishneigð hins vegar. Hin síðarnefnda væri eitthvað sem samfélagið viðurkenndi ekki og reyndi að leitast við að laga og því hlyti hið sama að eiga við um samkynhneigð!!! Þessi „„rökfærsla““ (takið eftir tvöföldu gæsalöppunum sem ég set utan um orðið til að undirstrika sérstaklega hversu víðs fjarri röklegum hugsunarhætti þetta bull er) hittir auðvitað sjálfa sig fyrir. Ef hægt er að laga samkynhneigð, líkt og aðrar hneigðir, hvað þá með gagnkynhneigð? Get ég stormað inn í Krossinn og farið fram á það við Gunnar Þorsteinsson að hann „hommi“ mig (þar sem ég bý við það að hneigjast til kvenna) í stað þess að „afhomma“ mig (en slíkt er víst óþarft í mínu tilfelli)?

Nasistar hafa með réttu verið almennt illa þokkaðir í gegnum tíðina og litið hefur verið á þá með skömm vegna „hneigða“ þeirra til grófustu gerða ofbeldis, djúprar mannfyrirlitningar og skilningsleysis og ofsókna gagnvart þeim einstaklingum og hópum sem ekki falla að heimsmynd þeirra (svo fátt eitt sé talið). Eitt af því sem var þýskum nasistum (og skoðanabræðrum þeirra síðar) þyrnir í augum var tjáningar- og skoðanafrelsi manna. Enda er það háttur ofstækisblesa og einræðisseggja að berjast gegn slíku í von um að geta steypt öllum í sama mót, þ.e. sitt eigið. Þetta er eitthvað sem samkynhneigðir á Íslandi verða ekki sakaðir um að gera, því þvert á móti er það eitt af áhersluatriðum samtaka þeirra að réttur einstaklinganna til að vera þeir sjálfir sé virtur, hvort sem þeir séu samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir. Samt sem áður kýs Snorri Óskarsson og undirstrika fáfræði sína og mannfyrirlitningu með því að líkja samkynhneigðum við nasista. Er það ekki dálítið sérkennileg samlíking komandi frá manni sem sjálfur hefur opinberað afstöðu sína til tjáningar- og skoðanafrelsis með því að standa að bóka- og geisladiskabrennu í anda þýskra nasista?

Er ekki ábyrgðarhluti að einstaklingur eins og Snorri Óskarsson sé starfandi kennari og geti þannig beitt stöðu sinni til að koma viðhorfum sínum inn hjá nemendum? Er ekki maður sem virðist ekki geta haldið opinberlega aftur af ofstæki sínu gagnvart ákveðnum hópum samfélagsins (einkum samkynhneigðum) líklegur til að ala á fordómum og hatri gagnvart þessum sömu hópum innan veggja kennslustofunnar? Erum við í þörf fyrir aukningu á mannfyrirlitningu og fáfræði í samfélaginu?

Posted at 10:29 am by Myrkur
Comments (1)

Friday, August 11, 2006
Ljóðmælandi dagsins

Áðan heyrði ég (staddur í þjóðdeild Landsbókasafnsins) vorn ástkæra Hannes kviðra eftirfarandi vísu að kunningja sínum:

Við skulum ekki hafa hátt
hér er gæs að vappa.
Margur hefur allt sitt átt
innan gæsalappa.


Kannski er karlinn ekki eins húmorslaus og hann virðist vera?

Posted at 04:08 pm by Myrkur
Make a comment

Wednesday, August 09, 2006
Góð pólitísk tíðindi - og spurning

Ég get ekki sagt annað en að þessi frétt gladdi mig enda er viðkomandi stjórnmálamaður afar ógeðfelld persónu. Ég hef raunar ítrekað nefnt hann sem dæmi um hversu rotið pólitískt ástand í BNA er þar sem hagsmuna- og viðskiptatengsl vernda það ástand að íbúum ríkisins bjóðist tæpast aðrir kostir en stóru flokkarnir tveir - sem eru nánast því eins. Það eru afar ógeðfelldir kostir í kosningum að hafa aðeins um að velja hægrisinnaðan flokk og öfga hægriflokk.

Eftirfarandi spurningin brennur á fólki á mínu svæði þessa stundina, með tilliti til frétta síðustu daga (og þó einkum sjónvarpsfrétta RÚV í gærkvöld):
Var ofbeldisruddi settur yfir löggæsluna hérna?

Annars er ég á leið í bæinn og því er ólíklegt að hér verði bloggað um stund.

Posted at 09:35 am by Myrkur
Comments (1)

Tuesday, August 08, 2006
Allt frekar rólegt

Þá er verslunarmannahelgin liðin. Það þýðir að nú rennur ölvunar- og meðvirknisástandið af fjölmiðlamönnum og þeir munu þessa vikuna einbeita sér að skuggahliðum hátíðahaldanna sem afar lítið var minnst á um helgina. Í hönd fara sumsé "fjölmiðlatimburmenn" að loknu helgarsvalli.

Annars er mér nokkuð sama. Ég eyddi helginni í að vinna og var vel sáttur við það. Enn sáttari var ég þegar ég áttaði mig á því að fyrir vinnuna fæ ég trúlega nokkuð meira útborgað en ég hefði eytt um helgina, hefði ég fylgt straumnum.

Á morgun er svo tíundi vinnudagurinn í röð hjá mér. En að lokinni vinnu á morgun mun ég svo bregða undir mig betri fætinum og halda til Reykjavíkur þar sem ég mun stoppa í nokkra daga. Ferðin er þó ekki hreinræktuð skemmtiferð því eitthvað þarf ég vinna, snatta og "erindast". En annars hef ég í hyggju að reyna sem mest ég get að slappa af og láta mér líða vel. Hef fulla trú á að það muni takast.

Posted at 11:48 am by Myrkur
Comments (1)

Saturday, August 05, 2006
Komið á óvart

Einhver sagði að það væru litlu hlutirnir í lífinu sem gerðu það skemmtilegt. Hvort sem það er rétt eða ekki þá má sannarlega hafa gaman af ýmsu smávægilegu sem hendir mann.

Í gær kom t.d. hingað inn á Minjasafnið dönsk kona sem heilsaði mér á dönsku og talaði eingöngu dönsku við mig. En annars er það óskráð regla að ég tala við alla útlendinga á ensku (eða einhverju formi hennar) eða þá með einhverskonar táknmáli og handapati þegar enskukunnáttuna þrýtur hjá öðrum hvorum eða báðum. Það merkilega við spjallið við þessa dönsku konu var að ég skyldi svotil allt sem hún sagði. Það útaf fyrir sig finnst mér merkilegt því að ég get ekki hrósað sjálfum mér fyrir að hafa lagt rækt við dönskunám í grunnskóla og menntaskóla og þá litlu þekkingu sem ég þó aflaði mér hef ég "passað vel upp á" að nota ekki neitt.

Í gærkvöld hringdi í mig maður sem mun eiga grein í ráðstefnuriti sem ég er að ritstýra. Einhvern tíma hefði ég ekki verið viðræðuhæfur á föstudagskvöldi um verslunarmannahelgi en það hefur breyst eins og ýmislegt annað. Þessi ágæti maður sem hringdi sá sérstaka ástæðu til að hrósa mér fyrir kurteisi og langlundargeð í sinn garð. Ég var alveg steinhissa því ég taldi mig bara vera að brúka venjulega mannasiði sem ég hef reynt að temja mér og rifja upp úr því uppeldi sem foreldrar mínir veittu mér. En maðurinn í símanum sat fast við sinn keip og hélt áfram að hrósa mér fyrir þetta. Hann sagðist síður eiga þessu að venjast því oft væru ritstjórar óþolinmóðir, ýtnir og kannski ekkert alltof nærgætnir. Það var ánægjulegt að heyra þetta, sérstaklega frá einstaklingi sem er "hokinn af reynslu" á þessu sviði.

---

Hver annar en ég rúntar um með saltstein í bílnum hjá sér? Ekki er þó svo að ég þjáist af steinefnaskorti. Þessi ágæti steinn er öðrum ætlaður. Í kvöld mun ég að rúnta með hann heim í sveitina þar sem honum verður stillt upp á hól fyrir ofan bæinn. Þar veit ég af fenginni reynslu að steinninn mun njóta gríðarlegra vinsælda, svo mikilla að hann mun hverfa á nokkrum dögum.

Sumir koma færarndi hendi með gjafir og blóm. Ég kem með saltstein.

Posted at 12:56 pm by Myrkur
Comments (1)

Next Page