Myrkur -?-?- Trúum á efann!






Andans fólk?

Ausa

Ásta Kristín

Borgþór

Bragi

Einar

Einar og Agnes

Einkamál SJ

Elías Jón

Eyrún

Fraiser

Hel

Ingó

Ingvar

Íris

Ísleifur

Jakob

Jökulnornin

Kata

Kristjana

Kuldaboli

Landneminn

Maggi Tóki

Magni

Máni

Ofurrollan

Sigga Hulda

Skotta

Stefán Bogi

Stefanbogi.is

Svenni

Sverrir

Unnur

Urdur

Þóra P

Þórunn Gréta

Vígþór

Vésteinn



Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


blogdrive

Friday, August 04, 2006
Um stjórnmál og tónleika

Ég held að Eyjamönnum sé varla viðbjargandi þegar kemur að pólitík. Fyrir skömmu varð það opinbert að fyrrum bæjarstjóri í Eyjum, Guðjón Hjörleifsson, hefði höndlað með opinbera fjármuni með "sérkennilegum hætti" svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það nýjasta er svo að undirskriftasöfnun sé hafin til styrktar Árna Johnsen með það að markmiði að hann fari í framboð og verði þingmaður á ný. Það er mikil smekkvísi í því að hvetja mann til þingframboðs sem hefur fengið fangelsisdóm fyrir að misnota almannafé á meðan hann gegndi þingmennsku. Mann sem reyndi að hylma yfir gerðir sínar og baðst aldrei afsökunar á þeim. Kannski er meiningin að hann leysi Guðjón af á þingi meðan sá síðarnefndi verður settur inn? Hver veit?

Af fréttum í gær mátti greina hversu einlægan áhuga (eða hitt þó heldur) er að finna í dómsmálaráðuneytinu fyrir því að umræða skapist um símhleranir og aðrar persónunjósnir yfirvalda hér á landi á Kalda stríðs tímanum. Það er mjög í stíl við þá ímynd sem ég hef af ráðherra þessara mála sé hann sem þjófur um nótt að stinga undan eða að tefja fyrir aðgangi að "óþægilegum" gögnum.

Varðandi litla íhaldsflokkinn sem styður þann stóra til valda (þ.e. þangað hann verður of lítill og Samfylkingin fær að láta þann langþráða draum sinn rætast að verða hækja íhaldsins í staðinn) verð ég að segja að ég er enn að velta því fyrir mér hvort að í þingmannaliði þess flokks finnist einhver sem ekki er hryggleysingi. En líklega er þetta flokknur í meðvituðum sjálfsvígsleiðangri. Hvað er hægt að segja? Flokksformaður hrökklast frá af því að flokkurinn er að hverfa undir hans stjórn. Áður en hann kveður skipar hann vin sinn og gamlan skólafélaga sem ráðherra og gengur um leið framhjá þingmönnum flokksins. Og úps! Skömmu síðar er hinn nýbakaði ráðherra orðin formannskandídat og enginn virðist ætla gegn honum af þingmönnunum. Ergo: Gamli formaðurinn afhendir völdin í þægilegum gjafaumbúðum og enginn bregst við. Flott lýðræði!?!? Eða ... já, já ...

-----

Á vefritinu HUGSANDI er að finna grein um tónleika Belle & Sebastian og Emilíönu Torrini á Borgarfirði eystri um daginn. Mér fannst bara rétt að nefna þetta hefði það farið framhjá einhverjum.

Posted at 09:35 am by Myrkur
Make a comment

Thursday, August 03, 2006
Tilvitnun gærdagsins

Ég hef lengi haft mætur á Jóni Ormi Halldórssyni og skrifum hans. Að lesa eftirfarandi niðurlag á pistli Jóns Orms í Fréttablaðinu í gær kætti mig þó að tilefni skrifanna væri síður en svo skemmtilegt:

"Tilhneiging manna til að koma sér upp hentugum skoðunum, búa til í kringum þær notalega fordóma og fá síðan guð í lið með sér virðist ekki hafa minnkað í aldanna rás. Trúarbrögðin mæta þörfum manna til að aðgreina hópinn sinn frá öðrum hópum. Í samtímanum eru allir hópar í návígi. Smækkun almættisins niður í það óttaslegna og yfirgangssama í mannsálinni er hættulegri en áður."

Þar hafið þið það.

Posted at 09:49 am by Myrkur
Make a comment

Wednesday, August 02, 2006
Atvinnubótavinna?

Morgunútvarpi Rásar 2 er stjórnað af útbrunninni útvarpskonu og einhverjum dreng sem lætur mann fá kjánahroll í hvert skipti sem hann segir eitthvað.

Líklega er það viðeigandi að þetta tvíeyki hafi gert Guðmund Steingrímsson að álitsgjafa hjá sér.

Orðið "metnaður" virðist eitthvað svo fjarlægt þegar hlustað er á þennan þátt.

Posted at 10:05 am by Myrkur
Make a comment

Friday, July 28, 2006
Annað sjónarhorn

Ég hef lengi verið lítt uppnuminn yfir landslagi á Reykjanesi. Mér hefur til þessa fundist þetta nes bjóða upp á fátt annað en rok og einsleitt hraun. Við nánari umhugsun rann upp fyrir mér að ég hef sjaldnast farið út af Reykjanesbrautinni og því séð (eða upplifað) fátt utan hennar.

Fyrir skömmu fór ég í smá ferðalag um Reykjanesið. Öfugt við það sem ég hafði áður talið býður nesið upp á mikla fjölbreytni. Margar tegundir af auðn! - jú, og gróðri líka. Þetta er ekki landsvæði fyrir þá sem aðeins sjá fegurð í þéttri gróðurþekju en fyrir aðra getur þetta verið mjög gaman. Reykjanesvitinn og svæðið umhverfis hann er mjög áhugavert og sannarlega gaman að hafa komið þangað. Það er eitthvað stóískt við það að halla sér upp að vitanum og stara út á opið Atlantshafið, sjá báta lóna í kring og Eldey rísa í fjarska. Það leiðinlega er hins vegar að það er veruleg fyrirhöfn að komast að vitanum því leiðin er illa merkt og vegurinn er hryllingur sem liggur í ótal hlykkjum.

Annað svæði á Reykjanesi sem er afskaplega heillandi er Kleifarvatn og umhverfi þess. Það er eitthvað mystískt og ógnarlegt við þetta svæði. En það er líka mikil fjölbreytni í landslaginu þar og ég held að þetta svæði hljóti að vera veisluborð fyrir jarðfræðinga. Er að hugsa um að hafa einn slíkan með mér næst þegar ég fer þangað. Hafandi búið í sex ár í Reykjavík finnst mér ótrúlegt til þess að hugsa að ég skuli ekki hafa farið að vatninu fyrr enda örstutt frá höfuðborgarsvæðinu. Það er hálfkómískt að ég skuli ekki hafa komið þangað fyrr en EFTIR að ég er fluttur burt af svæðinu.

Eftir sem áður finnst mér almennt lítið koma til þéttbýlisstaðanna á Reykjanesi. Þorpið í Höfnum stendur þó uppúr (eða kannski niðrúr) hvað þetta varðar. Ofan á það að þessum fáu húsum er dreift um víðan völl í litlu samhengi eru mörg þeirra í mikilli niðurnýðslu eða þannig umgengin að maður lítur undan.

Posted at 10:01 am by Myrkur
Make a comment

Monday, July 24, 2006
Hinn litli sjóndeildarhringur

Fréttir eins og þessi hafa verið allmargar að undanförnu.

Allir stærstu fjölmiðlar landsins hafa aðalstöðvar sínar á höfuðborgarsvæðinu og frá þeim hafa heyrst reglulegar kvartanir yfir veðrinu í sumar, þ.e. hvernig það hefur verið á suður og vesturlandi. Þessar kvartanir eru síður en svo ástæðulausar. Það sem fer hins vegar í taugarnar á mér er hinn þröngi sjóndeildarhringur þeirra sem um þetta fjalla. Því samkvæmt fréttunum virðist hafa verið skítviðri á öllu landinu í allt sumar. Virðist þetta eiga við alla sem um þetta fjalla og ég hef heyrt í útvarpi, sjónvarpi eða hef lesið eftir í blöðum. Staðhæfingar um versta sumar í manna minnu Á LANDINU ÖLLU hafa ítrekað hljómað næstum daglega og þetta litla fréttaskot á Moggavefnum er því aðeins sýnishorn.

Af þessu virðist mega draga þá ályktun að sjónardeildarhringurinn sé heldur þröngur á ritstjórnunum þegar kemur að umfjöllun um veðurfarið. Sannleikurinn er sá að á meðan veðrið hefur verið blautt og kalt fyrir sunnan og vestan hefur verið hlýtt og þurrt víðast hvar fyrir norðan og austan. Hér á mínu svæði hefur verið um og yfir 20 stiga hiti og sólskin stóran hluta daga í júní og júlí. Þetta er búið að vera veðurfarslega eitt BESTA sumar sem ég man eftir hér.

Af margra ára reynslu er skrítið að það skuli ekki hvarfla að fleirum sem tjá sig opinberlega um veðrið að á meðan það er leiðinlegt á öðrum enda eyjunnar er það oftar en ekki gott á hinum endanum. Ágætt dæmi um þetta var í vor þegar Mýrarnar brunnu og allt var skrjáfandi fyrir vestan. Þá var allt á kafi í snjó í mínum heimahögum og ég stóð í því að moka upp mannvirki og vegi með traktor. Þegar hins vegar gerði tveggja daga rigningu hér um daginn og veðrið batnaði að sama skapi fyrir sunnan og vestan, þá var LOKSINS komið sumar á LANDINU.

Posted at 04:26 pm by Myrkur
Make a comment

Thursday, July 13, 2006
Til varnar efnahagslífinu

Það virðist vera að skella á kreppa! Verðbólgan er á hraðri uppleið og ríkisvaldið boðar niðurskurð og aðhald. En hvað getur almenningur gert til að sporna við ástandinu?

Ég heyrði fyrir skömmu af manni sem ætlaði ekki að bregðast skyldum sínum í þessum efnum. Hann var ákveðinn í að sýna gott fordæmi og draga úr framkvæmdum á sínum heimili. Fyrsta skrefið var að sleppa því að slá garðinn!

Kannski að ég gerist ábyrgur líka, eins og þessi ágæti maður. Bíllinn minn er í brýnni þörf fyrir að verða þrifinn. En ef ég þríf hann allan í einu gæti það virkað þensluhvetjandi. Þess vegna ætla ég að skipta þrifunum í smærri hluta og dreifa "framkvæmdunum" á allt sumarið - eitthvað af þeim verður svo kannski geymt fram á haust og sett þá í útboð.

Posted at 12:56 pm by Myrkur
Comments (1)

Tuesday, July 11, 2006
Nafnið

My name using Egyptian Hieroglyphs!

H R A F N K E L L  L A R U S S O N


Try your name

Script by


Þetta er flott. En ég held að ég haldi mig samt við latínuletrið.

Posted at 10:36 am by Myrkur
Make a comment

Saturday, July 08, 2006
Lesbók dagsins

Eftir að ég komst í eigið húsnæði hér í sveitarþorpinu ákvað ég að gerast áskrifandi af Mogganum - nánar tiltekið af helgarblöðum Moggans. Það sem vakti einkum fyrir mér með þessu var að fá til mín Lesbók Morgunblaðsins sem mér finnst nauðsynlegt að sjá reglulega enda oft að finna í henni mjög áhugavert efni.

Oftar en ekki hef ég þó skautað nokkuð hratt í gegnum lesbókina. Bæði er það vegna þess að ég er oft frekar tímaknappur og svo er auðvitað á tíðum efni í lesbókinni sem höfðar ekki til mín. Það er reyndar ágætt líka því að þó að ég hafi fremur fjölbreytt áhugasvið væri blaðið þó líkast til of einsleitt ef allt efni þess í öllum tölublöðum þess höfðaði til mín. Fjölbreytileikinn er mikilvægur hér sem annarsstaðar.

Lesbók dagsins í dag er frábær! Ég held að ég hafi svotil lesið hana upp til agna og varð það til þess að morgunkaffið dróst verulega á langinn þennan laugardagsmorgun. Ég sökkti mér ofan í greinar um samtímastjórnmál og náttúruna sem og um hugarfar kaldastríðsins og kolefnislosun. Ég mæli því með þessari lesbók, ekki síst pistlum Jóns Ólafssonar og Illuga Jökulssonar.

Það er reyndar annað sem reglulega vekur hjá mér ánægju með lesbókina. Á síðu tvö í henni er ávallt vitnað í litlum dálki til skrifa sem birtast á netinu. Ítrekað hefur að undanförnu verið vísað í þessum dálki til greina sem birst hafa á Hugsandi. Ég get ekki sagt að mér leiðist það.

Posted at 03:57 pm by Myrkur
Make a comment

Thursday, July 06, 2006
HM - skiptir eitthvað annað máli?

Jæja, það eru víst Ítalir og Frakkar sem spila til úrslita á sunnudaginn. Einhvern tíma hefði maður talið að það væri uppskrift af drepleiðinlegum 120 mínútum. En núna er ég bara nokkuð bjartsýnn á að fá ágætan leik þó maður sé svo sem ekkert að gera sér vonir um meira en eitt mark.

Hver hefði trúað því fyrirfram að leikur milli Þjóðverja og Ítala yrði stórkostleg skemmtun! Ekki ég a.m.k. Oft hefur maður setið og horft á leiki með þessum liðum og kleprað af leiðindum yfir varnarfótboltanum sem þau spiluðu (mikið er gaman að geta haft þetta í þátíð).

Að Argentínumönnum undanskyldum fannst mér öll liðin sem duttu út úr 8 liða úrslitunum eiga það skilið. Englendingar voru yfir heildina séð vonbrigði með tilliti til þess mannskapar sem þeir hafa. Umgjörðin í kringum enska liðið fer reyndar alltaf í taugarnar á mér. Þetta yfirgengilega dramb í Englendingum þegar kemur að fótbolta er vægast sagt hvimleitt. Englendingar hafa aðeins einu sinni orðið heimsmeistarar. Brasilíumenn hafa unnið fimm sinnum, Ítalir þrisvar, Þjóðverjar tvisvar - og Úrúgvæar líka tvisvar. Þegar illa fer hjá Englendingum falla stuðningsmenn liðsins svo ávallt í sama farið. Það er leitað að skúrki til að kenna um. Árið 1998 var það Beckham fyrir rauða spjaldið á móti Argentínu. Núna var þetta hins vegar flóknara. Það var erfitt að gera gulldrenginn Rooney sem öllu átti að bjarga (nýstiginn upp úr fótbroti!) að skúrk! Því var miklu þægilegra að finna skúrkinn í liði andstæðinganna og kenna Christiano Ronaldo um. Enda átti hann auðvitað ekkert með það að vera fúll yfir því að troðið væri á hreðjunum á samherja hans! Eða hvað? En nóg um það.

Ég verð að viðurkenna að ég hafði enga eftirsjá eftir Brössunum þegar þeir duttu út. Þeir áttu, rétt eins og Englendingar, ekki skilið að fara lengra miðað við fótboltann sem þeir voru að spila. Af annarri ástæðu er ég líka feginn því að Brassarnir duttu út. Það situr ennþá í mér síðan á HM 2002 hvernig Brassarnir breyttu fagnaðarlátunum með árangur sinn í viðbjóðslegt trúarofstæki þar sem þeir voru knékrjúpandi á vellinum baulandi upp í himininn. Fótbolti er íþrótt sem hefur sameiningargildi. Allsstaðar í heiminum er spilaður fótbolti. Fólk af öllum kynþáttum, trúarbrögðum og úr öllum þjóðfélagsþrepum spilar fótbolta. Stjórnmál og trúarbrögð eru hins vegar nokkuð sem skapar óvild og óeiningu víða um heiminn. Íþróttir eiga að vera lausar undan hvoru tveggju enda kemur það íþróttum ekki við. Það er bæði sorglet og ömurlegt að verða vitni að því þegar íþróttamenn þurfa að gjalda fyrir valdagræðgi og yfirgang stjórnmálamanna eins og nýlegt dæmi frá Grikklandi ber vitni um. Eða að knattspyrnumenn frá Íran verði fyrir aðkasti vegna aðgerða þarlendra stjórnvalda, o.s.frv. En því miður er það svo að stjórnmál og trúarbrögð hafa tilhneigingu til að dreifa sér allsstaðar - ekki ósvipað og sýklar.

Posted at 03:17 pm by Myrkur
Make a comment

Friday, June 30, 2006
HM-blogg

Nú sér fyrir endann á HM í fótbolta og maður er farinn að naga sig í handarbökin yfir að hafa misst af alltof mörgum leikjum. En það er svo sem ekki gott við að gera þegar stór hluti þeirra var sýndur á vinnutíma auk þess sem að maður þurfti alltaf að bregða sér af bæ og inn á einhverja veitingastaði til að sinna þörfinni fyrir fótboltagláp. Ekki tekur maður a.m.k. þátt í að láta Sýn okra á sér. Fyrr fengi ég mér gervihnattadisk enda ekki mikils misst þó maður væri án sumra þulanna og "spekinganna" á Sýn. Einhver sagði mér það um daginn að RÚV yrði með HM eftir fjögur ár. Ef rétt er þá er sérstök ástæða til að fagna því. Ekki svo að skilja að íþróttadeild RÚV sé úttroðin af snillingum heldur verður þetta (ef rétt er) til þess að þá geta allir séð útsendingarnar í opinni dagskrá. Ég er reyndar á því að hér eigi að taka upp Skandinavísku aðferðina hvað varðar útsendingar frá HM og öðrum viðlíka viðburðum, þ.e. að það sé gert að skilyrði að útsendingarnar séu í opinni dagskrá og nái til allra.

Annars finnst mér það sem ég hef séð af HM hafa verið nokkuð gott. Mér fannst eftirtektarvert hversu vel leikirnir voru dæmdir fyrri hluta riðlakeppninnar. Það virðist hins vegar hafa orðið nokkrar misfellur á þeim málum síðari hlutann. Þó dómarar í fótbolta séu fjarri því að vera hafnir yfir gagnrýni (til dæmis hef ég velt því fyrir mér lengi hvort að Rússar eigi virkilega engann betri dómara en Valentin Ivanov!) þá má ekki gleyma því að taka tillit til þeirrar stöðu sem þessir menn eru í. Þeir þurfa að taka ákvarðanir á svipstundu, og standa við þær, um atvik sem þeir sáu e.t.v. ekki þannig að þeir séu 100% vissir um hvað beri að gera. Inni á vellinum eru 22 egóistar sem allir reyna að fá allt sem þeir geta og helst töluvert meira til. Allt í kring eru síðan tugir þúsunda áhorfenda sem taka þátt í því með leikmönnum síns liðs að reyna að fá sem mest fyrir sinn snúð. Það er því fjarri því einfalt að vera dómari.

Fótboltinn sem hefur verið spilaður á HM er upp og ofan eins og gengur. Þó hefur komið mér á óvart að bæði Þjóðverjar og Ítalir spila mun skemmtilegri bolta en þeir hafa oft gert á stórmótum. Stundum hafa þessi lið verið svo varnarsinnuð og drepleiðinleg að það hefur alið af sér sjálfsvígshugsanir að horfa á þau. Öðru máli gegnir um Brassana sem mér finnst hafa verið slappir miðað við það sem áður hefur sést til þeirra. Englendingar eru hins vegar "leiðindagaurar" þessarar keppni sem að mínum dómi hefðu ekki komist áfram í 16 liða úrslit hefðu þeir lent í einhverjum af erfiðustu riðlunum (Fílabeinströndin hefði t.a.m. mörgum sinnum frekar en Englendingar átt skilið að komast áfram). Að þeir séu komnir í 8 liða úrslit er í raun ótrúlegt bæði miðað við spilamennskuna og miðað við hvernig liðið var valið. Að koma því sem næst framherjalausu liði (með tvo nýkomna úr alvarlegum meiðslum og annan þeirra meiddur aftur - með einn sem er furðufyrirbæri og tæpast í HM-klassa - og svo einn krakka!) í 8 liða úrslit á HM er auðvitað ákveðið afrek. Hvað Úkraínumenn eru að gera í 8 liða úrslitum er líka spurning! Já, og Frakkar sem voru búnir að vera svo lélegir og leiðinlegir alla riðlakeppnina að ég var farin að vona að þeir yrðu sendir heim (því þeir áttu ekkert annað skilið) eiga svo skyndilega stórleik gegn slöppum Spánverjum sem fram að því höfðu verið frábærir.

Í dag hefjast svo 8 liða úrslitin. Ég vonast til að sjá alla leikina í þeim og bíð spenntur eftir leikjunum þó svo að mitt uppáhaldslið (Holland) hafi valdið vonbrigðum á þessu stórmóti eins og svo mörgum öðrum. Ég bind því vonir mínar við að annað hvort Argentína eða Portúgal fari alla leið. Vonandi verður endirinn á þessu móti ekki í sama stíl og endirinn á síðasta Evrópumóti! Kræst! Í tómu gremjukasti horfði ég ekki á úrslitaleikinn á því móti og skilst að ég hafi ekki misst af miklu.

Posted at 12:32 pm by Myrkur
Comments (1)

Previous Page Next Page