|
Í gær kom t.d. hingað inn á Minjasafnið dönsk kona sem heilsaði mér á dönsku og talaði eingöngu dönsku við mig. En annars er það óskráð regla að ég tala við alla útlendinga á ensku (eða einhverju formi hennar) eða þá með einhverskonar táknmáli og handapati þegar enskukunnáttuna þrýtur hjá öðrum hvorum eða báðum. Það merkilega við spjallið við þessa dönsku konu var að ég skyldi svotil allt sem hún sagði. Það útaf fyrir sig finnst mér merkilegt því að ég get ekki hrósað sjálfum mér fyrir að hafa lagt rækt við dönskunám í grunnskóla og menntaskóla og þá litlu þekkingu sem ég þó aflaði mér hef ég "passað vel upp á" að nota ekki neitt. Í gærkvöld hringdi í mig maður sem mun eiga grein í ráðstefnuriti sem ég er að ritstýra. Einhvern tíma hefði ég ekki verið viðræðuhæfur á föstudagskvöldi um verslunarmannahelgi en það hefur breyst eins og ýmislegt annað. Þessi ágæti maður sem hringdi sá sérstaka ástæðu til að hrósa mér fyrir kurteisi og langlundargeð í sinn garð. Ég var alveg steinhissa því ég taldi mig bara vera að brúka venjulega mannasiði sem ég hef reynt að temja mér og rifja upp úr því uppeldi sem foreldrar mínir veittu mér. En maðurinn í símanum sat fast við sinn keip og hélt áfram að hrósa mér fyrir þetta. Hann sagðist síður eiga þessu að venjast því oft væru ritstjórar óþolinmóðir, ýtnir og kannski ekkert alltof nærgætnir. Það var ánægjulegt að heyra þetta, sérstaklega frá einstaklingi sem er "hokinn af reynslu" á þessu sviði. --- Hver annar en ég rúntar um með saltstein í bílnum hjá sér? Ekki er þó svo að ég þjáist af steinefnaskorti. Þessi ágæti steinn er öðrum ætlaður. Í kvöld mun ég að rúnta með hann heim í sveitina þar sem honum verður stillt upp á hól fyrir ofan bæinn. Þar veit ég af fenginni reynslu að steinninn mun njóta gríðarlegra vinsælda, svo mikilla að hann mun hverfa á nokkrum dögum. Sumir koma færarndi hendi með gjafir og blóm. Ég kem með saltstein. |
| skotta August 7, 2006 09:49 AM PDT eg leysi tungumalavandann med ad fara til svithjodar i sprog kursen, ad minnsta kosti segji eg sjalfri mer ad thad komi til med ad leysa thennan vanda. | ||
| Leave a Comment: |