|
Á NFS í gærkvöld gaf m.a. að heyra kostulega og afskaplega ósmekklega samlíkingu Snorra á samkynhneigð annars vegar og ofbeldishneigð hins vegar. Hin síðarnefnda væri eitthvað sem samfélagið viðurkenndi ekki og reyndi að leitast við að laga og því hlyti hið sama að eiga við um samkynhneigð!!! Þessi „„rökfærsla““ (takið eftir tvöföldu gæsalöppunum sem ég set utan um orðið til að undirstrika sérstaklega hversu víðs fjarri röklegum hugsunarhætti þetta bull er) hittir auðvitað sjálfa sig fyrir. Ef hægt er að laga samkynhneigð, líkt og aðrar hneigðir, hvað þá með gagnkynhneigð? Get ég stormað inn í Krossinn og farið fram á það við Gunnar Þorsteinsson að hann „hommi“ mig (þar sem ég bý við það að hneigjast til kvenna) í stað þess að „afhomma“ mig (en slíkt er víst óþarft í mínu tilfelli)? Nasistar hafa með réttu verið almennt illa þokkaðir í gegnum tíðina og litið hefur verið á þá með skömm vegna „hneigða“ þeirra til grófustu gerða ofbeldis, djúprar mannfyrirlitningar og skilningsleysis og ofsókna gagnvart þeim einstaklingum og hópum sem ekki falla að heimsmynd þeirra (svo fátt eitt sé talið). Eitt af því sem var þýskum nasistum (og skoðanabræðrum þeirra síðar) þyrnir í augum var tjáningar- og skoðanafrelsi manna. Enda er það háttur ofstækisblesa og einræðisseggja að berjast gegn slíku í von um að geta steypt öllum í sama mót, þ.e. sitt eigið. Þetta er eitthvað sem samkynhneigðir á Íslandi verða ekki sakaðir um að gera, því þvert á móti er það eitt af áhersluatriðum samtaka þeirra að réttur einstaklinganna til að vera þeir sjálfir sé virtur, hvort sem þeir séu samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir. Samt sem áður kýs Snorri Óskarsson og undirstrika fáfræði sína og mannfyrirlitningu með því að líkja samkynhneigðum við nasista. Er það ekki dálítið sérkennileg samlíking komandi frá manni sem sjálfur hefur opinberað afstöðu sína til tjáningar- og skoðanafrelsis með því að standa að bóka- og geisladiskabrennu í anda þýskra nasista? Er ekki ábyrgðarhluti að einstaklingur eins og Snorri Óskarsson sé starfandi kennari og geti þannig beitt stöðu sinni til að koma viðhorfum sínum inn hjá nemendum? Er ekki maður sem virðist ekki geta haldið opinberlega aftur af ofstæki sínu gagnvart ákveðnum hópum samfélagsins (einkum samkynhneigðum) líklegur til að ala á fordómum og hatri gagnvart þessum sömu hópum innan veggja kennslustofunnar? Erum við í þörf fyrir aukningu á mannfyrirlitningu og fáfræði í samfélaginu? |