Entry: Orsök og afleiðingar Monday, August 21, 2006



Ég hef víst einhvern tíma áður lýst viðhorfi mínu til flugelda á þessari bloggsíðu. Ég tel að núna sé tilefni til að gera það aftur.

Þegar ég frétti af hinu hörmulega bílslysi átti sér stað skammt frá Mosfellsbæ rétt eftir miðnætti aðfaranótt síðastliðins sunnudags, sem varð vegna þess að hross hljóp í veg fyrir bíl sem svo lenti á öðrum bíl með þeim afleiðingum að einn maður lést og fleiri slösuðust, þá datt mér í hug að þetta væri ástæðan fyrir slysinu. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að sjá hesta sem hafa fælst (m.a. vegna flugelda) og þeir eru svo sannarlega stjórnlausir og æða yfir hvað sem fyrir verður algjörlega viti sínu fjær af hræðslu.

Þó ekki sé hægt að fullyrða með óyggjandi vissu að flugeldasýnining hafi valdið því að hrossin fældust þá verður að telja yfirgnæfandi líkur á að svo hafi verið. Hestar (líkt og flest önnur dýr) eru viðkvæmir fyrir sprengihvellum og leifturljósum. Flugeldasýning - einhver öfgafyllst táknmynd heimskulegrar efnishyggju - nær því í þessu tilfelli ekki aðeins að ala af sér barnaþrælkun í fjarlægum löndum heldur skapar hættuástand sem leiðir af sér dauða og örkuml. Þetta er í einu orði sagt: hörmulegt!

Ég vona að sá fjöldi sem góndi á flugeldasýninguna á menningarnótt, og á eftir að láta flugelda lýsa upp augu sín síðar meðan kjálkarnir síga niður á bringu, hafi notið sýningarinnar síðastliðið laugardagskvöld. Ég geri jafnframt ráð fyrir að stærstur hluti þess sama fjölda gæti þess að leiða ekki hugann að því hvaða verði þessa heimskulega glysgirni er keypt.

   1 comments

Svenni
August 21, 2006   01:24 PM PDT
 
Þetta er rangt hjá þér. Þetta sannar einungis að hestar eru stórhættuleg dýr sem ætti að geyma á bás og aldrei stíga á bak á heldur aðeins nota til manneldis. Fjórhjól gerir það sama og hestur nema það þarf bara að gefa því að borða þegar það er notað og það er ekki hrætt við neitt.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments