Myrkur
UPPRISINN OG FLUTTUR!!
      <description>Skyldi einhver ennþá ramba inn á þessa síðu þá langar mig að benda þeim hinum sama á að ég hef gert nýja innrás í netheima.
Fyrir skömmu tók ég að blogga að nýju og er slóðin: http://www.tilvist.wordpress.com
Síðustu dagar  ...
      <description>... hafa verið erfiðir fyrir margra hluta sakir. 
Framundan eru mörg verkefni og mikið erfiði.
Hér gætu því orðið strjálar færslur á næstunni.</description>
Afleysingahundahirðir
      <description>Skemmtilegur titill!
Það líður reyndar að starfslokum í þessu virðingarmikla starfi. Foreldrarnir snúa heim á morgun og ég þarf víst að mæta í dagvinnuna mína í fyrramálið. Þarf vegna þess að vakna óþægilega snemma og keyra yfir Breiðdalsheiðina til Héraðs. Heiðina, sem mér skyldist af því að lesa tölvupóst frá félaga í fjarlægu landi, að sé eins og hraðbraut miðað við það sem hann er að upplifa. Ég reyni því að brosa meðan ég hristist yfir holurnar á heiðinni, hugsandi um að aðrir keyri á verri vegum og þakkandi fyrir að ég sé ekki með falskar tennur eða sé að flytja neitt verulega... (more)</description>
Orsök og afleiðingar
      <description>Ég hef víst einhvern tíma áður lýst viðhorfi mínu til flugelda á þessari bloggsíðu. Ég tel að núna sé tilefni til að gera það aftur.
Þegar ég frétti af hinu hörmulega bílslysi átti sér stað skammt frá Mosfellsbæ rétt eftir miðnætti aðfaranótt síðastliðins sunnudags, sem varð vegna þess að hross hljóp í veg fyrir bíl sem svo lenti á öðrum bíl með þeim afleiðingum að einn maður lést og fleiri slösuðust, þá datt mér í hug að þetta væri ástæðan fyrir slysinu. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að sjá hesta sem hafa fælst (m.a. vegna flugelda) og þeir eru svo sannarlega stjórnlausir og æða yfir... (more)</description>
Gönguferð gærdagsins
      <description>Ég eyddi stórum hluta gærdagsins í 700 til 1000 metra hæð. Loksins létum við feðgar verða af því að skálma um svæði (á eigin landi og annarra) sem hann hefur sjaldan komið á og ég aldrei. Alls tók túrinn um sjö klukktíma, þar af vorum við um fjóra og hálfan á gangi, en við gátum stytt okkur nokkuð leið með því að keyra áleiðis og svo til baka. 
Ferðin var stórskemmtileg og margt athyglisvert bar fyrir augu. Margar útgáfur af auðn, ótrúlegur fjölbreytileiki steintegunda og (merkilegt nokk) allskonar plöntur sem maður finnur í auðninni, þegar betur er að gáð. Merkilegast var þó líklega að koma... (more)</description>
Íslenskur nasismi?
      <description>Snorri Óskarsson, áður kenndur við Betel í Vestmannaeyjum en núverandi kennari á Akureyri, er einn þeirra Íslendinga sem notar trúarbrögð sem afsökun fyrir að ala á fáfræði, ofstæki og mannfyrirlitningu.
Á NFS í gærkvöld gaf m.a. að heyra kostulega og afskaplega ósmekklega samlíkingu Snorra á samkynhneigð annars vegar og ofbeldishneigð hins vegar. Hin síðarnefnda væri eitthvað sem samfélagið viðurkenndi ekki og reyndi að leitast við að laga og því hlyti hið sama að eiga við um samkynhneigð!!! Þessi „„rökfærsla““ (takið eftir tvöföldu gæsalöppunum sem ég set utan um orðið til að undirstrika... (more)</description>
Ljóðmælandi dagsins
      <description>Áðan heyrði ég (staddur í þjóðdeild Landsbókasafnsins) vorn ástkæra Hannes kviðra eftirfarandi vísu að kunningja sínum:
Við skulum ekki hafa hátt
hér er gæs að vappa.
Margur hefur allt sitt átt
innan gæsalappa.
Kannski er karlinn ekki eins húmorslaus og hann virðist vera?</description>
Góð pólitísk tíðindi - og spurning
      <description>Ég get ekki sagt annað en að þessi frétt gladdi mig enda er viðkomandi stjórnmálamaður afar ógeðfelld persónu. Ég hef raunar ítrekað nefnt hann sem dæmi um hversu rotið pólitískt ástand í BNA er þar sem hagsmuna- og viðskiptatengsl vernda það ástand að íbúum ríkisins bjóðist tæpast aðrir kostir en stóru flokkarnir tveir - sem eru nánast því eins. Það eru afar ógeðfelldir kostir í kosningum að hafa aðeins um að velja hægrisinnaðan flokk og öfga hægriflokk.
Eftirfarandi spurningin brennur á fólki á mínu svæði þessa stundina, með tilliti til frétta síðustu daga (og þó einkum sjónvarpsfrétta RÚV... (more)</description>
Allt frekar rólegt
      <description>Þá er verslunarmannahelgin liðin. Það þýðir að nú rennur ölvunar- og meðvirknisástandið af fjölmiðlamönnum og þeir munu þessa vikuna einbeita sér að skuggahliðum hátíðahaldanna sem afar lítið var minnst á um helgina. Í hönd fara sumsé "fjölmiðlatimburmenn" að loknu helgarsvalli.
Annars er mér nokkuð sama. Ég eyddi helginni í að vinna og var vel sáttur við það. Enn sáttari var ég þegar ég áttaði mig á því að fyrir vinnuna fæ ég trúlega nokkuð meira útborgað en ég hefði eytt um helgina, hefði ég fylgt straumnum.
Á morgun er svo tíundi vinnudagurinn í röð hjá mér. En að lokinni vinnu á morgun... (more)</description>
Komið á óvart
      <description>Einhver sagði að það væru litlu hlutirnir í lífinu sem gerðu það skemmtilegt. Hvort sem það er rétt eða ekki þá má sannarlega hafa gaman af ýmsu smávægilegu sem hendir mann.
Í gær kom t.d. hingað inn á Minjasafnið dönsk kona sem heilsaði mér á dönsku og talaði eingöngu dönsku við mig. En annars er það óskráð regla að ég tala við alla útlendinga á ensku (eða einhverju formi hennar) eða þá með einhverskonar táknmáli og handapati þegar enskukunnáttuna þrýtur hjá öðrum hvorum eða báðum. Það merkilega við spjallið við þessa dönsku konu var að ég skyldi svotil allt sem hún sagði. Það útaf fyrir... (more)</description>